Angkor Wat og AK-47

Date July 1, 2008

Við erum búin að vera í Bangkok í tvo daga núna og ég ætla að reyna að vinna upp tímann sem við vorum í Cambodiu.
Skammt fyrir utan Phnom Pehn er herstöð þar sem hægt að komast í vopnabúrið þeirra og fá að skjóta af hinum og þessum byssum. Ég var harðákveðinn í að skjóta af AK47 Kalashnikov þó svo að M16 (RAMBÓ!!) væri freistandi líka.
Það ganga sögur um að það sé mögulegt að skjóta af bazooka á belju en ég get ekki staðfest það. Það bauð mér amk enginn að sprengja upp búfénað.
Við keyptum okkur sitthvort magasínið og puðruðum 30 skotum á skotmark sem slapp án teljandi meiðsla.

Nálægt Siem Reap er Angkor Wat, stærsta trúarlega bygging í heimi. Við keyptum þriggja daga kort en á síðasta deginum var komin einhver musterisþreyta í okkur svo við slökuðum bara á.

6 Responses to “Angkor Wat og AK-47”

  1. mamma said:

    Flottar byggingar og skrítið að sjá ræturnar kremja þær. Datt nú bara í hug þegar ég sá Birnu með riffilinn að það er nú fínt að hún notar hanska en ekki AK-47 í markinu ;)
    Það er ekkert verið að spara dúkana á riffilborðið.
    Góða ferð og farið varlega í að kafa.
    Love

  2. Helga Dögg said:

    Vó, mega byssur! myndi ekki vilja mæta þér í húsasundi með eina svona, snoðaður eins og alvöru byssudóni…

  3. Biggi Gringo said:

    Alveg brilliant myndir, betri í DOD en í alvöru? hehe

  4. Kría said:

    Byssudóni?…mér fannst þú svolítið líkur Beckham:) Þið takið ykkur vel út á þessum myndum!
    Ótrúlega flottar myndir. Ég sit hér við skrifborðið mitt í vinnunni og læt mig dreyma um fjarlægar slóðir…

  5. mamma said:

    Nafnið þitt komið á póstkassann, Ingunn búin að fá skilaboð, svo nú getur pakkinn komið ;)
    Love

  6. Ebbi said:

    það er nú allt hægt að skjóta á, ef maður borgar nógu mikið hugsa ég.
    var e-ð búinn að heyra um þetta og skildist mér að eftir einhverja pólitík sé þetta nú orðið svoldið “underground” og þá náttúrlega koma skrímslin fram.

    Held samt að þú sért meira “sharp” í CS

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>