Elsku mamma, til hamingju með daginn. Ég vona að þú hafir átt góðan dag og að það verði mikið dansað í teitinni. Fimmtíu ár fara þér vel. Ég a.m.k. vona að ég hafi erft krumpugenin þín.
Kossar frá Malasíu
Baldi og Birna
Entries Categorized as 'Allt og ekkert'
Stórafmæli!
July 25, 2008
Frá Laos til Cambodiu
June 20, 2008
Nú kemur svolítið löng færsla enda dálítið síðan við skrifuðum síðast. Til að byrja með vil ég óska Þorra og Kríu til hamingju með útskriftina fyrir nokkrum dögum. Ingó var líka að klára og stóð sig frábærlega. Kossar frá okkur Birnu.
Frá Vang Vien fórum við til höfuðborgar Laos, Vientien. Ekki sérstaklega áhugaverður staður svo við dokuðum aðeins við í tvo daga og fórum til Champasak. Bærinn fær ekki marga ferðamenn þó að þar séu rústir frá því fyrir tíma Angkor veldisins sem eru á lista UN yfir World Heritage Sites.
Það vildi svo skemmtilega til að daginn eftir að við komum var haldin frjósemishátíð til að uppskeran í ár yrði nú sæmileg. Hún fer þannig fram að frá morgni til kvöld er drukkið Lao Lao (sem við vorum búin að brenna okkur á) og skotið upp flugeldum. Flugeldarnir tákna reður og eiga að “frjóvga” himininn. Þetta var allt saman mjög skemmtilegt á að horfa enda tóku allir í bænum þátt í að skjóta upp tippaflugeldunum og skreyttu sig með dónamyndum. Um miðjan daginn var skrúðganga um bæinn þar sem nokkrir strákar voru í broddi fylkingar með hreyfibrúður í samfarastellingum. Við fórum síðan og skoðuðum rústirnar og um kvöldið fórum á lokahófið sem var haldið í musterisgarði þar sem fólk dansaði og söng og alls konar leikir voru í boði. Hápunkturinn þar fannst okkur vera fjáhættuspil sem nokkrir 8-10 ára strákar voru að stjórna.
Við kvöddum Kyle og Eriku daginn eftir og héldum til Don Det sem er eyja í Mekong og tilheyrir 4000 Islands. Tókum því frekar rólega, hjóluðum um eyjuna og skoðuðum fossa eða lágum í hengirúmunum okkar og horfðum á sólina setjast. Frá Don Det lá leiðin til Cambodiu og landamærin þar eru sérlega hressileg. Vel staðsett, lengst út í rassgati og landamæraverðirnir eru bastarðar. Landvistarleyfið kostar 20$ en síðan er sérstakt “stimpilgjald” sem er hvergi getið í opinberum skjölum. Þetta er yfirleitt “bara 1$” en þar sem meiri hluti Cambódíbúa lifir á undir 2$ á dag og hundruð manna fara fara um landamærin á degi hverjum. Það þýðir að landamæraverðir fá daglega það sem aðrir vinna sér inn á mánuði. Ef að næsta yfirstétt í landinu á ekki að vera landamæraverðir þá þarf einhver að segja eitthvað. Mér hefur lengi verið í nöp við tollverði og landamæraverði.
Við réttum þeim vegabréfin okkar og þeir hófust handa við skrifræðið, líma miða inn í vegabréfið, skoða myndina, velta fyrir sér hvenær sé kominn tími til að fá sér morgunblund og krota eitthvað á miða. Þegar þetta ferli er að klárast segir skriffinnur: “One dollar, one passport”
“Ég borga 20$ og ekki dollar meira” sagði ég keikur. Um leið lagðist niður öll vinna við vegabréfsáritanirnar.
“One dollar, one passport” endurtók yfirmaðurinn á staðnum.
“Ég er búinn að borga það sem ég þarf”
“This is my country!”
“Mínir peningar! Það væri réttast að ég kvartaði við sendiráðið mitt…”
Ekkert svar, enginn einu sinni horfði í áttina að okkur og ég fékk ekkert svar þegar ég bað um vegabréfin aftur. Við sáum að við stóðum halloka í þessu samtali þar sem vegabréfin okkar voru í þeirra höndum, 20km í næsta bæ og bílstjórinn okkar hvergi sjáanlegur.
Ég greip blað og penna og fór að hnipra niður númerin á búningunum þeirra og við það varð yfirmaðurinn vitlaus, bablaði heil ósköp á ensku og þreif miðann af mér. Við ákváðum að sættast á 1$ fyrir okkur bæði. Ég var sáttur. Númerið hans er 34885 ef einhver þarf að fara þarna í gegn bráðlega.
Fyrsti bærinn sem við stoppuðum í Cambodiumegin heitir Ban Lung. Við leigðum motobike og eyddum heilum degi í að skoða fossa sem eru í nágrenninu og enduðum síðan daginn á að synda í vatni sem hefur myndast í eldfjallagíg. Við eyddum 2 dögum þar og kynntumst Hollensku pari sem við höfum verið að ferðast með síðan.
Við erum komin til Siem Reap núna en næsta færsla verður um Phnom Pehn þar sem við fórum í millitíðinni.
Eftir langa bid
April 26, 2008
Kashmir
April 19, 2008
Bilstjorinn steig bensinid i botn og sveigdi fram hja hnullungum sem hofdu hrunid ur klettaveggnum fyrir ofan. Eg hugsa med mer ad tad vaeri ods manns aedi a keyra hradar en a 50km hrada her. Eg se nalina a maelinum snerta 90km/klst. Eg get amk thakkad fyrir ad sitja ekki haegra megin i bilnum eins og Birna. Thad sest allt of vel hvad er langt nidur i dalinn theim megin. Eg er buinn ad atta mig a thvi ad eg get ekki fengid Hazim til ad aka haegar en ef til vill er hann faanlegur til ad nota flautuna meira.
Sums stadar er vegurinn grafinn i sundur af litlum laekjum og annars stadar er hrunid ur vegkantinum. Eg kvidi thvi mest ad maeta storum vorubil i kroppustu beygjunum en sem betur fer virdist ekki neitt staerra en beljur vera a ferdinni i dag.
Vid nemum stadar i dal sem heitir Sonmarg og er i 3000m haed. Guidinn okkar er gamall bondi sem heitir Rajid. Hann er kengboginn en arkar upp hlidarnar eins og hann vaeri tvitugur. Fjollin eru virki allt i kring. Eftir eins og halfs tima hike thurfum ad snua vid og fara upp adra hlid thvi daginn adur hafdi fallid snjoflod yfir leidina okkar. Aetli vid hofum ekki komist i svo sem eins og 3300 metra haed.
Hazim ekur greitt a leidinni heim en eg er ekkert stressadur. Kannski er eg of theyttur, kannski hef eg komst ad theirri nidurstodu ad Hazim se prydilegur bilstjori.
Um 30km fra Srinagar thar sem vid hofum gist undanfarna daga nemur hann stadar. Framundan eru tugir bila sem eru lika stopp. Eftir ad hafa skipst a hropum og kollum vid gangandi vegfarendur segir hann okkur ad rafmagnsstaur hafi gefid sig og linan fallid a veginn. Thad er ekki ad sja ad nokkur hafi meidst alvarlega thvi ahorfendur drifur ad og virdast flestir skemmta ser agaetlega yfir timabundinni oreidunni sem hefur skapast a veginum. Eftir svo sem tiu minutur virdist hnuturinn leysast af sjalfu ser og vid holdum afram inn i Srinagar eins og ekkert hefdi i skorist.
Thegar vid komum ad Dal Lake, thar sem husbaturinn okkar er bundinn, dynja baenir ur hatalarkerfum um allan baeinn. Hinduar og Muslimar voru ad thakka hvor sinum gud fyrir ad stoppa rigninguna sem hefur fyllt alla laekjarfarvegi og haetta var a ad stiflur brystu ef rigningunni ekki linnti. Baenirnar oma enn medan vid erum ferjud yfir vatnid.
No tuktuk, no silk thank you!
April 13, 2008
Buin ad spaena i gegnum Indland sidustu daga. Fra Bikaner forum vid til Pushkar tar sem Brahma setti lotusblom a jordina og ur vard vatn sem baerinn stendur vid. Vid logdum blom a vatnid og oskudum hamingju og farsaeld til ykkar allra. Tad kvold forum vid a cameldyri ut i eydimorkina og horfdum a solina setjas. Heradid sem vid forum um heitir Rahastan og gerir mikid ut a alls kyns vinnslu a verdmaetum steinum. Bilstjorinn okkar godi er augljoslega a bonusmala hja nokkrum teirra og hann vildi olmur ad vid skodum thessa verslun eda hina. A einum stadnum fengum vid ad sja verksmidjuna sjalfa, nokkrir horadir menn satu a golfinu med handknuinn slipirokk og einhver verkfaeri. Mjog serstakt. Sidan fengum vid ad spjalla vid eigandann sem atti lika thrjar verslanir til vidbotar, eina i Bangkok og hinar i Evropu. Hann hafdi hring a flestum fingrum og var vel pattaralegur.
Vid erum buin ad vera dalitid einangrud fyrstu dagana thar sem vid thurftum ad keyra 4-5 tima a dag. Skoda allt adur en lokadi, yfirleitt um 20 og svo forum vid daudthreytt upp a hotel. Sidasti dagurinn med bilstjora var i Agra. Vid forum ad Taj Mahal um kl 17 og horfdum a solsetrid. Thessi bygging er mjog falleg tho hun se ekki eins iburdarmikil og sumar hallirnar sem vid hofum sed en thad er eitthvad alveg serstakt vid Taj Mahal. Shaj Jahan byggdi hana i minningu annarar konu sinnar, Mumtaz. Hun er ur gegnheilum marmara og tok 23 ar ad byggja. Nokkrum arum eftir ad byggingunni lauk greip Aurangzeb sonur Jahan voldin af fodur og fangelsadi hann i Agra virki. Eina utsynid sem hann hafdi i 8 ar var yfir minnismerkid sem hann reisti konu sinni.
I lestinni fra Agra til Varanasi hittum vid loksins adra ferdalanga. Tha loksins attudum vid okkur a tvi ad okkur var naudsynlegt ad tala vid annad folk um klikkunina herna. Thad er virkilega othaegilegt ad koma Indverjum i skilning um ad thu viljir ekki kaupa eitthvad af theim an thess ad finnast thu donalegur i vestraenum skilningi. Thad er lika omurlegt ad sja hvernig er komid fram vid stettlausafolkid. Verd ad ljuka tessu nuna. Tokum lestina a eftir til Delhi og svo fljugum vid til Jammu og Kashmir thar sem vedrid aetti ad vera adeins svalara.
4 ár hjá Vodafone
March 28, 2008
Í dag er síðasti dagurinn minn hjá Vodafone eftir tæplega 4ra ára starf. Það eru blendnar tilfinningar í gangi. Ég hef haft það mjög gott hjá fyrirtækinu og unnið með góðu fólki. Hins vegar hefur þetta góða fólk sinn hátt á að kveðja vinnufélaga sína.
Til sölu
March 27, 2008
Bíllinn var fluttur inn af umboðinu og kom á götuna í ágúst ‘95. Ég er 6. eigandi að bílnum. Hann er alveg yfirfarinn og skoðaður fyrir ‘09. Hafið samband í síma 6699549 fyrir frekari upplýsingar eða skiljið eftir komment.
[gallery]Vél: M40B16 – 1,6l 102 hestöfl AlpinWeiß III (Hvítur) Svart áklæði að innan Ekinn 171 þúsund Smurbók frá upphafi Sjálfskiptur Miðstöð með AC Pioneer geislaspilari Magnari + box Rafmagn í rúðum og speglum 15″ orginal BMW áfelgur á vetrardekkjum Hluti af pústi endurnýjaður Nýjir demparar að aftan Nýjir bremsuklossar að framan Ný bremsurör Nýr spindill Skoðaður ‘09
Tekinn!
February 26, 2008
Einhver fáviti er með leiðindi og fær það í bakið. Þetta er með því betra sem ég hef séð lengi hvort sem þetta er sviðsett eða ekki.
Operation Deserter Storm
January 23, 2008
Part 1.
Part 2.
5, 4, 3, 1 – OFFBLAST!
January 18, 2008
2008 er svo nýtt að það er eiginlega í framtíðinni. (Terminator II gerðist 1997). Þess vegna fannst mér við hæfi að fyrsta færslan á nýju ári væri myndbandið hans Zlad við lagið Electronic Supersonic sem er mjög futuristic. Long live the spacerace!
Posted in














content rss
