Entries Categorized as 'Ferðablogg'

Síðustu dagarnir í Thailandi

Date July 15, 2008

Við erum við það að komast á Perhentian eyjarnar í Malasíu. Eina sem stendur í vegi fyrir okkur er bátsdallur sem er hættur að ganga í dag og við erum strand í bæ sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Við erum búin að vera í 2 daga á ferðinni svo við ákváðum að splæsa í aircon og sjónvarp á hóteli í nótt. Lúxusinn kostar heilar 1100kr en við eigum það skilið.
Koh Tao var brilliant. Við fylgdum ráðleggingum frá kanadísku vinum okkar sem höfðu verið þarna á ferðinni nokkrum dögum áður og keyptum köfunarnámskeið hjá LV Divers. Leiðbeinendurnir voru frábært fólk og virkilega gaman að fara í gegnum þetta prógramm með þeim. Köfunarnámskeiðið tók bara þrjá daga en við ákváðum að vera nokkra daga í viðbót og njóta eyjunnar og fá réttindi til að kafa enn dýpra. Það er ótrúleg tilfinning að svamla á milli kóralla og þúsunda fiska í neonlitum. Í djúpköfuninni okkar voru hákarlar syndandi allt í kring sem var býsna svalt.
Við eyddum síðan nokkrum dögum á Koh Phangan sem er eyja sunnan við Koh Tao. Það er svona Majorka fyrir Asíubúa, það er ekkert þarna nema strönd og á kvöldin eru skemmtistaðir á ströndinni. Afskaplega einfalt.
Hápunkturinn hjá þeim er síðan Full moon partý þar sem eyjan breytist í Sódómu og miðbæ Reykjavíkur á sama tíma. Það verður allt vitlaust í partí og stóðlífi og allt kostar 3x meira en venjulega.
Við létum okkur nægja að kíkja á Half moon teiti og pilluðum okkur svo af eyjunni og erum núna strand í bænum sem við vitum ekki hvað heitir. Edit: Ef einhver giskaði á að við værum í bænum Kota Bharu þá á hann inni hjá mér kaffisopa. Gildir í DK only…

Myndirnar hér fyrir neðan eru í þetta skiptið ekki teknar af mér heldur Damien Llambi og birtar með góðfúslegu.
[gallery]

Slakað á ströndinni

Date July 4, 2008

Sihanoukville er á suðurströnd Cambódíu svo það var löng ferðin frá Siem Reap. Sem betur fer eru vegirnir á þessum leiðum þokkalegir end er þetta eina hafnarborgin í landinu. Við gerðum heiðarlegar tilraunir til að vera ferðamenn en ekki túristar með því að fara og leita uppi höfnina og markaðinn en staðreyndin er sú að það er ekkert í Sihanoukville nema ströndin. Svo við fórum á ströndina.
Þar sem hollensku vinir okkar voru á leiðinni til Víetnam ákváðum við að vera þeim samferða til Kep sem er 30km frá landamærunum. Kep er drullupyttur og peningaplokk. Það er enginn bær heldur röð af gistihúsum og hótelum. Nóttin kostaði 35$ alls staðar sem er klárlega okur. Það versta var samt að þó svo að við værum einu ferðamennirnir í bænum þá var enginn tilbúinn að gefa afslátt og fullyrtu að það væri ekki til neitt sem heitir low season. Það var kominn smá hiti í mig svo við ákváðum að finna leið til að komast úr bænum aftur. Við tókum samt gistingu á stað sem var þokkalegur en kostaði heila 10$.
“How much for a tuk tuk to Kampot?” spurði ég í móttökunni.
“About 12-14$.” var svarið. Þetta hljómar kannski ekki mikið en þegar þú veist að daglaunin hjá meirihluta þjóðarinnar er 2$ og fjarlægðin sem við þurfum að fara er ekki nema 20km…
“No, I want cheap…”
“Nothing cheap.”
“No of course not.” Ég labbaði inn á herbergi.
Við kvöddum Joost og Tamöru um morguninn og fórum til Kampot. Þar rétt hjá eru nokkrir hellar svo við leigðum okur motobike og keyrðum ym sveitina til að finna þá. Kampot var mun skemmtilegri staður en Kep svo við vorum þar auka dag áður en við fórum til Bangkok. Við vorum í Bangkok í nokkra daga, aðallega að bíða eftir klæðskerasniðnu jakkafötunum mínum og dragtinni hennar Birnu. Þegar það var komið í póst héldum við til Koh Tao þar sem við erum núna.

[gallery]

Angkor Wat og AK-47

Date July 1, 2008

Við erum búin að vera í Bangkok í tvo daga núna og ég ætla að reyna að vinna upp tímann sem við vorum í Cambodiu.
Skammt fyrir utan Phnom Pehn er herstöð þar sem hægt að komast í vopnabúrið þeirra og fá að skjóta af hinum og þessum byssum. Ég var harðákveðinn í að skjóta af AK47 Kalashnikov þó svo að M16 (RAMBÓ!!) væri freistandi líka.
Það ganga sögur um að það sé mögulegt að skjóta af bazooka á belju en ég get ekki staðfest það. Það bauð mér amk enginn að sprengja upp búfénað.
Við keyptum okkur sitthvort magasínið og puðruðum 30 skotum á skotmark sem slapp án teljandi meiðsla.

Nálægt Siem Reap er Angkor Wat, stærsta trúarlega bygging í heimi. Við keyptum þriggja daga kort en á síðasta deginum var komin einhver musterisþreyta í okkur svo við slökuðum bara á.

[gallery]

S21 & Killing Fields

Date June 29, 2008

Rútan frá Ban Lung til Phnom Pehn var skelfileg. Við tókum minibus sem tekur 11 farþega skv. framleiðanda. Asíubúar hafa þó lag á því að troða eins mörgum um borð og mögulegt er svo við keyptum ekki miða fyrr en við vorum búin að ganga úr skugga um að það væri “one person, one seat”. Við ollum nokkrum töfum þegar við heimtuðum að rútan færi af stað með einungis 12 farþega. Fjandinn hafi það, við borguðum 12$ hvort fyrir sætið okkar á meðan local fólkið borgar kannski 1$-1.5$. Á endanum lagði rútan af stað með 15 farþega.
Við vorum ekkert sérstaklega hress með farþegafjöldan en hugguðum okkur við að það væru amk ekki neinn búfénaður með í för. Fjarlægðir í Cambódíu er mældar í klukkustundum en ekki kílómetrum enda eru vegirnir þannig að ferðatíminn breytist eftir árstíðum. Núna er monsoon svo færi er með allra versta móti. Ferðin tók 11 tíma.

Phnom Penh er höfuðborgin í Cambódíu og stendur við bakka Tonle Sap sem rennur út í Mekong nokkur hundruð metrum sunnar. Það kom okkur virkilega á óvart hvað Phnom Pehn er falleg borg, breiðstræti með stórum eikartrjám og gömlum húsum í frönskum stíl.
Fyrst kvöldið sátum við með nýju vinum okkar frá hollandi í “lobbíinu” á gistiheimilinu okkar og vorum á leiðinni að finna okkur eitthvað að borða þegar maður kemur hlaupandi inn og spyr hvort það sé læknir á staðnum. Enginn læknir gaf sig fram en um 10 manns voru tilbúnir að fara með honum og “skoða” slysið. Þegar við lögðum svo af stað í kvöldmat sáum við að slysið hafði verið 20 metrum frá gistiheimilinu okkar. Tveir menn á mótorhjólum höfðu skollið sama og lágu meðvitundarlausir á götunni. Þegar við komum að götuhorninu mættum við sjúkrabílnum og vísuðum honum rétta leið. Við sáum að fólkið á gistiheimilinu var að ljúka við að setja mennina í læsta hliðarlega með stuðningi við höfuðið. Sjúkraflutningamennirnir tóku út börur og óku þeim að hlið annara mannsins og vippuðu honum upp á og óku honum inn í sjúkrabílinni.
Ég átti eiginlega von á að þeir myndu að minsta kosti athuga hjartslátt og öndun, kannski setja hann í kraga en slíkt tíðkast ekki í Cambódíu. Okkur brá samt öllum þegar þeir snéru sér að seinni manninum, gripu um hendur og lappir á honum og smelltu honum á gólfið við hliðina á þeim fyrri. Hugsanlega fá þeir borgað per skrokk sem þeir skila af sér.

Daginn eftir fórum við í S21 og Killing Fields. Þegar Rauðu Khmerarnir náðu völdum 1975 byrjuðu þeir á að tæma allar borgir og bæi og sendu fólk út í sveit til að rækta hrísgrjón. Samfélagið átti að vera stéttlaust og fullkomið og efnahagslegur grunnur þjóðarinnar átti að vera landbúnaður. Þeir lokuðu landinu fyrir öllum utanaðkomandi áhrifum og ætluðu að vera sjálfum sér nægir um allt. Áður en lönd geta orðið “fullkomin” þá þarf að losa sig við óæskilega einstaklinga, fólk sem er neikvætt eða leggur sig ekki nóg fram á ökrunum eða er frá CIA.
Tuol Sleng (S21) er skóli sem var breytt í fangelsi til að pína út játningar fyrir Pol Pot og hina geðsjúklingana sem stjórnuðu landinu. Þegar allir voru orðnir sannfærðir um að viðkomandi væri búinn að játa allt sem hann hafði brotið af sér var honum ekið út fyrir Phnom Pehn og tekinn af lífi á Killing Fields. Engin var of ungur eða of gamall til að vera óvinur. Karlar, konur, börn og aldraðir. 17000 manns fóru í gegnum S21 og aðeins 7 lifðu af. Síðustu fórnarlömbin voru enn á pyntingarbekkjunum þegar Víetnamar hertóku borgina 1979. S21 er bara eitt af mörgum slíkum fangelsum sem voru staðsett um allt landið.

Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvernig það er að ganga þarna um svo hér eru nokkrar myndir.

[gallery]

Tilkynningaskyldan

Date June 26, 2008

Áætlanir breytast á svona ferðalögum. Við erum enn í Cambodiu, Kampot nánar tiltekið og förum til Bangkok á morgun. Þegar komum þangað getum við vonandi sett inn myndir og sagt frá Phnom Pehn og Angkor Wat. Setti inn smá kort sem sýnir hvar við höfum verið að hrekkja innfædda síðustu vikur. Sennilega er betra að skoða stóru útgáfuna með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Kveðjur frá Kampot!

p.s.
Var að heyra eitthvað um verðbólgu upp á tæp 13% heima. Þetta er grábölvað og snertir okkur öll en það er huggun harmi gegn að bjórinn hér kostar um 40kr á barnum. Þið eigið skilið að fá Thule fyrir að þrauka þetta.

Frá Laos til Cambodiu

Date June 20, 2008

Nú kemur svolítið löng færsla enda dálítið síðan við skrifuðum síðast. Til að byrja með vil ég óska Þorra og Kríu til hamingju með útskriftina fyrir nokkrum dögum. Ingó var líka að klára og stóð sig frábærlega. Kossar frá okkur Birnu.
Frá Vang Vien fórum við til höfuðborgar Laos, Vientien. Ekki sérstaklega áhugaverður staður svo við dokuðum aðeins við í tvo daga og fórum til Champasak. Bærinn fær ekki marga ferðamenn þó að þar séu rústir frá því fyrir tíma Angkor veldisins sem eru á lista UN yfir World Heritage Sites.
Það vildi svo skemmtilega til að daginn eftir að við komum var haldin frjósemishátíð til að uppskeran í ár yrði nú sæmileg. Hún fer þannig fram að frá morgni til kvöld er drukkið Lao Lao (sem við vorum búin að brenna okkur á) og skotið upp flugeldum. Flugeldarnir tákna reður og eiga að “frjóvga” himininn. Þetta var allt saman mjög skemmtilegt á að horfa enda tóku allir í bænum þátt í að skjóta upp tippaflugeldunum og skreyttu sig með dónamyndum. Um miðjan daginn var skrúðganga um bæinn þar sem nokkrir strákar voru í broddi fylkingar með hreyfibrúður í samfarastellingum. Við fórum síðan og skoðuðum rústirnar og um kvöldið fórum á lokahófið sem var haldið í musterisgarði þar sem fólk dansaði og söng og alls konar leikir voru í boði. Hápunkturinn þar fannst okkur vera fjáhættuspil sem nokkrir 8-10 ára strákar voru að stjórna.
Við kvöddum Kyle og Eriku daginn eftir og héldum til Don Det sem er eyja í Mekong og tilheyrir 4000 Islands. Tókum því frekar rólega, hjóluðum um eyjuna og skoðuðum fossa eða lágum í hengirúmunum okkar og horfðum á sólina setjast. Frá Don Det lá leiðin til Cambodiu og landamærin þar eru sérlega hressileg. Vel staðsett, lengst út í rassgati og landamæraverðirnir eru bastarðar. Landvistarleyfið kostar 20$ en síðan er sérstakt “stimpilgjald” sem er hvergi getið í opinberum skjölum. Þetta er yfirleitt “bara 1$” en þar sem meiri hluti Cambódíbúa lifir á undir 2$ á dag og hundruð manna fara fara um landamærin á degi hverjum. Það þýðir að landamæraverðir fá daglega það sem aðrir vinna sér inn á mánuði. Ef að næsta yfirstétt í landinu á ekki að vera landamæraverðir þá þarf einhver að segja eitthvað. Mér hefur lengi verið í nöp við tollverði og landamæraverði.
Við réttum þeim vegabréfin okkar og þeir hófust handa við skrifræðið, líma miða inn í vegabréfið, skoða myndina, velta fyrir sér hvenær sé kominn tími til að fá sér morgunblund og krota eitthvað á miða. Þegar þetta ferli er að klárast segir skriffinnur: “One dollar, one passport”
“Ég borga 20$ og ekki dollar meira” sagði ég keikur. Um leið lagðist niður öll vinna við vegabréfsáritanirnar.
“One dollar, one passport” endurtók yfirmaðurinn á staðnum.
“Ég er búinn að borga það sem ég þarf”
“This is my country!”
“Mínir peningar! Það væri réttast að ég kvartaði við sendiráðið mitt…”
Ekkert svar, enginn einu sinni horfði í áttina að okkur og ég fékk ekkert svar þegar ég bað um vegabréfin aftur. Við sáum að við stóðum halloka í þessu samtali þar sem vegabréfin okkar voru í þeirra höndum, 20km í næsta bæ og bílstjórinn okkar hvergi sjáanlegur.
Ég greip blað og penna og fór að hnipra niður númerin á búningunum þeirra og við það varð yfirmaðurinn vitlaus, bablaði heil ósköp á ensku og þreif miðann af mér. Við ákváðum að sættast á 1$ fyrir okkur bæði. Ég var sáttur. Númerið hans er 34885 ef einhver þarf að fara þarna í gegn bráðlega.
Fyrsti bærinn sem við stoppuðum í Cambodiumegin heitir Ban Lung. Við leigðum motobike og eyddum heilum degi í að skoða fossa sem eru í nágrenninu og enduðum síðan daginn á að synda í vatni sem hefur myndast í eldfjallagíg. Við eyddum 2 dögum þar og kynntumst Hollensku pari sem við höfum verið að ferðast með síðan.
Við erum komin til Siem Reap núna en næsta færsla verður um Phnom Pehn þar sem við fórum í millitíðinni.

[gallery]

Milljonamaeringur

Date June 6, 2008

Vang Vieng er snilldarstaður. Vid leigðum okkur túbur ur traktorsdekkjum og flutum niður ánna. Á bökkunum meðfram anni eru barir sem bjóða okeypis Lao Lao sem er banvænt i miklu magni. Aðalfjörið er þó ad fara i rólurnar og sveifla ser yfir vatnið og stökkva útí. Vid fórum med Kyle og Erica i fyrradag og um kvöldid var veðmálið okkar Birnu útkljáð. Vid fundum rakarastofu sem var í raun og veru ekkert annað en rakarastóll i bambuskofa. Já, ég vann veðmálið en af því ad eigandi “rakarastofunnar” vaknaði og kveikti öll ljósin þorðum við ekki annað en að flýja. Rakstrinum var ekki alveg lokið svo ég var með hanakamb í einn dag.
[gallery]

Nidur Mekong

Date May 30, 2008

Thad er ekki fra svo miklu ad segja eftir sidustu daga svo thessi faersla verdur frekar stutt. Vid hofum hitt frabaert folk a leidinni fra Bangkok til Luang Prabang. Akkurat nuna erum vid ad ferdast med Kanadisku pari, Kyle og Erika, sem er a somu leid og vid um Laos. Vid kynntumst theim um bord i slowboat sem vid tokum fra Thailensku landamaerunum til Luang Prabang. Thad er tveggja daga sigling nidur Mekong svo vid nyttum timann i ad spila.
I gaer forum vid ad fossi sem er i 30 km fjarlaegd fra LPB. Vid hittum alveg a oskastundina thvi vid hofdum fossinn alveg fyrir okkur. Fyrir nedan fossinn var haegt ad synda og vid eyddum godum 2 timum i ad busla i vatninu og synda a bak vid fossinn. Thegar vid vorum ad fara maettum vid 20-30 manns a leidinni ad fossinum og eg efast um ad thad folk hafi att somu upplifun og vid. Ekki taka pakkaferdir.
Thad eru komnir um 2 manudir sidan eg fekk klippingu thannig ad eg er kominn med godan lubba. Eg hafdi verid ad velta fyrir mer ad raka bara allt af en Birna hafdi enga tru a thvi ad eg myndi lata verda af thvi svo nuna er vedmal komid i gang og thad er ekki i minni kantinum, 1 milljon Kip (gjaldmidillinn i Lao). Eg hef 3 daga til ad raka af mer allt harid og verda milljonamaeringur.
A morgun forum vid med rutu til Vang Vienn og thadan forum vid til Vientiene.
Lasum frettir a mbl adan ad thad hefdi verid jardskjalfti heima. Vonum ad allir seu heilir a hufi og ad ekki hafi ordid miklar skemmdir.

Friðarspillar

Date May 21, 2008

Það virðist allt loga í óeirðum þegar við yfirgefum lönd eða borgir sem við höfum eytt tíma í. Í Jaipur, Kashmir og Nepal hafa verið sprengitilræði síðustu daga og vikur. Við höfum þó alltaf verið í öruggri fjarlægð frá þessu öllu saman ekki orðið vör við neitt nema að í Delhi var talsvert mikil öryggisgæsla á lestar og metróstöðvum. Ég verð líka að segja að mér finnst öryggisgæsla á flugvöllum mun betri hér en á vesturlöndum þar sem aðalathyglin virðist vera að taka kókdósir og vatnsflöskur af farþegum. Hér máttu taka vatnið þitt með þér en ekki kveikjara eða eldspýtur sem mér finnst mun rökréttara.

Við horfðum á Man Utd vinna ensku deildina í Kathmandu og í kvöld ætlum við að horfa á United vinna Chel$ky. Við erum búin að finna stað sem hefur fengið leyfi til að hafa opið í nótt og það er ekki verra að þeir segjast bjóða upp á næstbestu pizzu í Chiang Mai.

Við erum búin að vera viku í Thailandi og það verður að segjast að það er talsvert auðveldara að eiga við fólk hér. Það er nóg að segja “Nei takk” við sölumenn, tuk tuk ökumenn, skransala og aðra sem vilja fá pening frá þér. Bangkok var akkúrat það sem við þurftum á þessum tímapunkti. Nútímaleg borg og Khao San Road er fullur af veitingastöðum og börum þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki á bakpokaferðalagi. Það var líka mjög spes að rekast á fólk sem við hittum í Kathmandu eða í Ghorepani (sem er uppi í fjöllum í Nepal) hér í 2-3000 km frá Nepal. Hverjar eru líkurnar að við skyldum vera í sömu borg á sama tíma og ramba inn á sama veitingastaðinn? Thailendingar, amk þeir sem búa í borgunum virðast flestir hafa það ágætt miðað við í Indlandi og Nepal. Hér sér maður ekki lengur fólk með belti sem nær tvo hringi utan um mittið.

Tókum 3 daga í Bangkok og fórum meðal annars í Konungshöllina, helgarmarkaðinn (15.000 básar) og í Tiger Temple (Tígrisdýramusterið) sem þið kannist kannski við ef þið horfið á Discovery. Svo tókum við næturrútu norður til Chiang Mai þar sem við erum núna. Við komum hingað klukkan 7 um morguninn svo dagurinn var langur og í gærkvöldi fengum við okkur nudd. Klukkutími af Thai nuddi kostar 120 baht (270kr). Við erum á leiðinni til Laos þannig að ég reikna með að við höldum áfram á morgun eða hinn. Frá landmærunum er ætlunin að taka Slowboat eftir Mekong ánni til Luang Prabang. Það tekur tvo daga en við erum búin að fá nóg af rútum í bili.

Örstutt um skordýrin hérna. Moskítoflugurnar geta verid ferlega pirrandi en maður er yfirleitt sofandi þegar þær stinga og bitin eru ekki eins slæm hér og í Indlandi. Lítið séð af kakkalökkum og þá helst á markaðinum þar sem þeir eru seldir eftir vigt. Mér finnst þeir of stökkir til að vera góðir en litlu centepedes ormarnir eru mjög fínir á bragðið.

Í lokin kemur svo smá glaðningur handa þeim sem hafa verið að bíða eftir myndum. Ef þú smellir á mynd, birtist myndin aðeins stærri á nýrri síðu. Ef þú smellir á myndina þar birtist hún í fullri stærð.

[gallery]

Nepal

Date May 11, 2008

Það var talsverður léttir að koma til Nepal eftir tvær vikur í Indlandi. Fyrstu vikunni eyddum við í Kathmandu, tókum stuttar dagsferðir á daginn og komum svo aftur á Hótel Monumental Paradise að kvöldi. Meðal staða sem við fórum á voru Bodanath (stærsta Buddha stupa í Nepal), Monkey Temple, Durbar Square í Patan of ýmislegt fleira.
Eitt kvöldið, þar sem við sátum á rooftop veitingastaðnum á M.P. kom Kedar, vinur Daða og Ástu til okkar. Hann hafði séð um að panta hótelið fyrir okkur og við ræddum um trekkið sem hann ætlaði með okkur í ofl. Við ákváðum að fara í fimm daga ferð frá Pokhara að stað sem heitir Gorepani. Nóttina áður en við ætluðum að fara af stað fengum við magakveisu og ferðin frestaðist um einn dag. Við vorum hálf orkulaus og borðuðum ekki mikið þessa fimm daga en það var svo margt að sjá og skoða þar sem við klöngruðumst með bakpokann okkar að það kom ekki sök. Það kann að koma á óvart en við sáum ekki svo mörg fjöll hér í Nepal heldur aðallega hóla. Þessir “hólar” eru allt að 5000 metra háir og magnaðari en nokkur fjöll heima. Hérna þykir ekki taka því að gefa þeim nöfn.
Í Gorepani vöknuðum við í dögun og gengum upp á Poonhill (3200m) og horfðum á sólina rísa yfir Fishtail og Annapurna South og Dhaulagiri, alvöru fjöll.
Það eru margir skrítnir kvistir í fjöllunum. Daginn sem við komum niður af Poon hill rákumst við á þann allra skrítnasta hingað til. Hann heitir/hét John og er/var slánalegur Íri sem hafði eytt síðustu 25 árum í að flakka um heiminn. Nú var hann sem sagt kominn til Nepal og ætlaði að kíkja á Annapurna Base Camp. Þetta er 8-12 daga ganga fyrir flesta svo hann reiknaði með því að vera 7 daga. Hann hafði engan guide og þurfti ekki porter (burðarmann) fyrir Adidas íþróttatöskuna sína sem hann hafði um öxlina. Hann var klæddur í stuttar khaki buxur og ermastutta skyrtu en hann fullyrti að hann væri með gallabuxur og leðurjakka í töskunni góðu, auk þess sem hann hefði nýlega fjárfest í Tíbetskum ullarsokkum. Ég ætla ekkert að fela það að ég er ekki viss um að hann snúi nokkurn tíman úr þessari ferð því A.B.C er í 4300m hæð og þar þarf hann að eyða amk. einni nótt. Við sváfum í flísbuxum og peysu í svefnpoka og var kalt í 2800m hæð. Ég óskaði honum alls hins besta þegar leiðir skildu í Tadapani.
Seinni parturinn af ferðinni var okkur talsvert auðveldari, bæði vorum við að hressast og matalystin að koma smám saman og núna lá leiðin líka niður á við.

Við eyddum nokkrum dögum í Pokhara þegar við komum til baka og héldum upp á afmælið hennar Birnu þar. Ég gaf henni maroon rauða Pashminu sem ég hafði lymskulega verslað án hennar vitneskju í Kashmir. Ég get verið mjög sneaky þegar mikið liggur við.

Við höfum tekið því ansi rólega síðan við komum til Kathmandu aftur sem hefur verið kærkomin tilbreyting. Við höfum rölt aðeins um bæinn, sest á kaffi hús og haft það huggulegt.