Við erum við það að komast á Perhentian eyjarnar í Malasíu. Eina sem stendur í vegi fyrir okkur er bátsdallur sem er hættur að ganga í dag og við erum strand í bæ sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Við erum búin að vera í 2 daga á ferðinni svo við ákváðum að splæsa í aircon og sjónvarp á hóteli í nótt. Lúxusinn kostar heilar 1100kr en við eigum það skilið.
Koh Tao var brilliant. Við fylgdum ráðleggingum frá kanadísku vinum okkar sem höfðu verið þarna á ferðinni nokkrum dögum áður og keyptum köfunarnámskeið hjá LV Divers. Leiðbeinendurnir voru frábært fólk og virkilega gaman að fara í gegnum þetta prógramm með þeim. Köfunarnámskeiðið tók bara þrjá daga en við ákváðum að vera nokkra daga í viðbót og njóta eyjunnar og fá réttindi til að kafa enn dýpra. Það er ótrúleg tilfinning að svamla á milli kóralla og þúsunda fiska í neonlitum. Í djúpköfuninni okkar voru hákarlar syndandi allt í kring sem var býsna svalt.
Við eyddum síðan nokkrum dögum á Koh Phangan sem er eyja sunnan við Koh Tao. Það er svona Majorka fyrir Asíubúa, það er ekkert þarna nema strönd og á kvöldin eru skemmtistaðir á ströndinni. Afskaplega einfalt.
Hápunkturinn hjá þeim er síðan Full moon partý þar sem eyjan breytist í Sódómu og miðbæ Reykjavíkur á sama tíma. Það verður allt vitlaust í partí og stóðlífi og allt kostar 3x meira en venjulega.
Við létum okkur nægja að kíkja á Half moon teiti og pilluðum okkur svo af eyjunni og erum núna strand í bænum sem við vitum ekki hvað heitir. Edit: Ef einhver giskaði á að við værum í bænum Kota Bharu þá á hann inni hjá mér kaffisopa. Gildir í DK only…
Myndirnar hér fyrir neðan eru í þetta skiptið ekki teknar af mér heldur Damien Llambi og birtar með góðfúslegu.
[gallery]
July 15, 2008
Posted in







content rss
