Entries Categorized as 'Thailand'

Síðustu dagarnir í Thailandi

Date July 15, 2008

Við erum við það að komast á Perhentian eyjarnar í Malasíu. Eina sem stendur í vegi fyrir okkur er bátsdallur sem er hættur að ganga í dag og við erum strand í bæ sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Við erum búin að vera í 2 daga á ferðinni svo við ákváðum að splæsa í aircon og sjónvarp á hóteli í nótt. Lúxusinn kostar heilar 1100kr en við eigum það skilið.
Koh Tao var brilliant. Við fylgdum ráðleggingum frá kanadísku vinum okkar sem höfðu verið þarna á ferðinni nokkrum dögum áður og keyptum köfunarnámskeið hjá LV Divers. Leiðbeinendurnir voru frábært fólk og virkilega gaman að fara í gegnum þetta prógramm með þeim. Köfunarnámskeiðið tók bara þrjá daga en við ákváðum að vera nokkra daga í viðbót og njóta eyjunnar og fá réttindi til að kafa enn dýpra. Það er ótrúleg tilfinning að svamla á milli kóralla og þúsunda fiska í neonlitum. Í djúpköfuninni okkar voru hákarlar syndandi allt í kring sem var býsna svalt.
Við eyddum síðan nokkrum dögum á Koh Phangan sem er eyja sunnan við Koh Tao. Það er svona Majorka fyrir Asíubúa, það er ekkert þarna nema strönd og á kvöldin eru skemmtistaðir á ströndinni. Afskaplega einfalt.
Hápunkturinn hjá þeim er síðan Full moon partý þar sem eyjan breytist í Sódómu og miðbæ Reykjavíkur á sama tíma. Það verður allt vitlaust í partí og stóðlífi og allt kostar 3x meira en venjulega.
Við létum okkur nægja að kíkja á Half moon teiti og pilluðum okkur svo af eyjunni og erum núna strand í bænum sem við vitum ekki hvað heitir. Edit: Ef einhver giskaði á að við værum í bænum Kota Bharu þá á hann inni hjá mér kaffisopa. Gildir í DK only…

Myndirnar hér fyrir neðan eru í þetta skiptið ekki teknar af mér heldur Damien Llambi og birtar með góðfúslegu.
[gallery]

Slakað á ströndinni

Date July 4, 2008

Sihanoukville er á suðurströnd Cambódíu svo það var löng ferðin frá Siem Reap. Sem betur fer eru vegirnir á þessum leiðum þokkalegir end er þetta eina hafnarborgin í landinu. Við gerðum heiðarlegar tilraunir til að vera ferðamenn en ekki túristar með því að fara og leita uppi höfnina og markaðinn en staðreyndin er sú að það er ekkert í Sihanoukville nema ströndin. Svo við fórum á ströndina.
Þar sem hollensku vinir okkar voru á leiðinni til Víetnam ákváðum við að vera þeim samferða til Kep sem er 30km frá landamærunum. Kep er drullupyttur og peningaplokk. Það er enginn bær heldur röð af gistihúsum og hótelum. Nóttin kostaði 35$ alls staðar sem er klárlega okur. Það versta var samt að þó svo að við værum einu ferðamennirnir í bænum þá var enginn tilbúinn að gefa afslátt og fullyrtu að það væri ekki til neitt sem heitir low season. Það var kominn smá hiti í mig svo við ákváðum að finna leið til að komast úr bænum aftur. Við tókum samt gistingu á stað sem var þokkalegur en kostaði heila 10$.
“How much for a tuk tuk to Kampot?” spurði ég í móttökunni.
“About 12-14$.” var svarið. Þetta hljómar kannski ekki mikið en þegar þú veist að daglaunin hjá meirihluta þjóðarinnar er 2$ og fjarlægðin sem við þurfum að fara er ekki nema 20km…
“No, I want cheap…”
“Nothing cheap.”
“No of course not.” Ég labbaði inn á herbergi.
Við kvöddum Joost og Tamöru um morguninn og fórum til Kampot. Þar rétt hjá eru nokkrir hellar svo við leigðum okur motobike og keyrðum ym sveitina til að finna þá. Kampot var mun skemmtilegri staður en Kep svo við vorum þar auka dag áður en við fórum til Bangkok. Við vorum í Bangkok í nokkra daga, aðallega að bíða eftir klæðskerasniðnu jakkafötunum mínum og dragtinni hennar Birnu. Þegar það var komið í póst héldum við til Koh Tao þar sem við erum núna.

[gallery]

Nidur Mekong

Date May 30, 2008

Thad er ekki fra svo miklu ad segja eftir sidustu daga svo thessi faersla verdur frekar stutt. Vid hofum hitt frabaert folk a leidinni fra Bangkok til Luang Prabang. Akkurat nuna erum vid ad ferdast med Kanadisku pari, Kyle og Erika, sem er a somu leid og vid um Laos. Vid kynntumst theim um bord i slowboat sem vid tokum fra Thailensku landamaerunum til Luang Prabang. Thad er tveggja daga sigling nidur Mekong svo vid nyttum timann i ad spila.
I gaer forum vid ad fossi sem er i 30 km fjarlaegd fra LPB. Vid hittum alveg a oskastundina thvi vid hofdum fossinn alveg fyrir okkur. Fyrir nedan fossinn var haegt ad synda og vid eyddum godum 2 timum i ad busla i vatninu og synda a bak vid fossinn. Thegar vid vorum ad fara maettum vid 20-30 manns a leidinni ad fossinum og eg efast um ad thad folk hafi att somu upplifun og vid. Ekki taka pakkaferdir.
Thad eru komnir um 2 manudir sidan eg fekk klippingu thannig ad eg er kominn med godan lubba. Eg hafdi verid ad velta fyrir mer ad raka bara allt af en Birna hafdi enga tru a thvi ad eg myndi lata verda af thvi svo nuna er vedmal komid i gang og thad er ekki i minni kantinum, 1 milljon Kip (gjaldmidillinn i Lao). Eg hef 3 daga til ad raka af mer allt harid og verda milljonamaeringur.
A morgun forum vid med rutu til Vang Vienn og thadan forum vid til Vientiene.
Lasum frettir a mbl adan ad thad hefdi verid jardskjalfti heima. Vonum ad allir seu heilir a hufi og ad ekki hafi ordid miklar skemmdir.

Friðarspillar

Date May 21, 2008

Það virðist allt loga í óeirðum þegar við yfirgefum lönd eða borgir sem við höfum eytt tíma í. Í Jaipur, Kashmir og Nepal hafa verið sprengitilræði síðustu daga og vikur. Við höfum þó alltaf verið í öruggri fjarlægð frá þessu öllu saman ekki orðið vör við neitt nema að í Delhi var talsvert mikil öryggisgæsla á lestar og metróstöðvum. Ég verð líka að segja að mér finnst öryggisgæsla á flugvöllum mun betri hér en á vesturlöndum þar sem aðalathyglin virðist vera að taka kókdósir og vatnsflöskur af farþegum. Hér máttu taka vatnið þitt með þér en ekki kveikjara eða eldspýtur sem mér finnst mun rökréttara.

Við horfðum á Man Utd vinna ensku deildina í Kathmandu og í kvöld ætlum við að horfa á United vinna Chel$ky. Við erum búin að finna stað sem hefur fengið leyfi til að hafa opið í nótt og það er ekki verra að þeir segjast bjóða upp á næstbestu pizzu í Chiang Mai.

Við erum búin að vera viku í Thailandi og það verður að segjast að það er talsvert auðveldara að eiga við fólk hér. Það er nóg að segja “Nei takk” við sölumenn, tuk tuk ökumenn, skransala og aðra sem vilja fá pening frá þér. Bangkok var akkúrat það sem við þurftum á þessum tímapunkti. Nútímaleg borg og Khao San Road er fullur af veitingastöðum og börum þar sem við hittum fullt af skemmtilegu fólki á bakpokaferðalagi. Það var líka mjög spes að rekast á fólk sem við hittum í Kathmandu eða í Ghorepani (sem er uppi í fjöllum í Nepal) hér í 2-3000 km frá Nepal. Hverjar eru líkurnar að við skyldum vera í sömu borg á sama tíma og ramba inn á sama veitingastaðinn? Thailendingar, amk þeir sem búa í borgunum virðast flestir hafa það ágætt miðað við í Indlandi og Nepal. Hér sér maður ekki lengur fólk með belti sem nær tvo hringi utan um mittið.

Tókum 3 daga í Bangkok og fórum meðal annars í Konungshöllina, helgarmarkaðinn (15.000 básar) og í Tiger Temple (Tígrisdýramusterið) sem þið kannist kannski við ef þið horfið á Discovery. Svo tókum við næturrútu norður til Chiang Mai þar sem við erum núna. Við komum hingað klukkan 7 um morguninn svo dagurinn var langur og í gærkvöldi fengum við okkur nudd. Klukkutími af Thai nuddi kostar 120 baht (270kr). Við erum á leiðinni til Laos þannig að ég reikna með að við höldum áfram á morgun eða hinn. Frá landmærunum er ætlunin að taka Slowboat eftir Mekong ánni til Luang Prabang. Það tekur tvo daga en við erum búin að fá nóg af rútum í bili.

Örstutt um skordýrin hérna. Moskítoflugurnar geta verid ferlega pirrandi en maður er yfirleitt sofandi þegar þær stinga og bitin eru ekki eins slæm hér og í Indlandi. Lítið séð af kakkalökkum og þá helst á markaðinum þar sem þeir eru seldir eftir vigt. Mér finnst þeir of stökkir til að vera góðir en litlu centepedes ormarnir eru mjög fínir á bragðið.

Í lokin kemur svo smá glaðningur handa þeim sem hafa verið að bíða eftir myndum. Ef þú smellir á mynd, birtist myndin aðeins stærri á nýrri síðu. Ef þú smellir á myndina þar birtist hún í fullri stærð.

[gallery]