Frá Laos til Cambodiu
June 20, 2008
Nú kemur svolítið löng færsla enda dálítið síðan við skrifuðum síðast. Til að byrja með vil ég óska Þorra og Kríu til hamingju með útskriftina fyrir nokkrum dögum. Ingó var líka að klára og stóð sig frábærlega. Kossar frá okkur Birnu.
Frá Vang Vien fórum við til höfuðborgar Laos, Vientien. Ekki sérstaklega áhugaverður staður svo við dokuðum aðeins við í tvo daga og fórum til Champasak. Bærinn fær ekki marga ferðamenn þó að þar séu rústir frá því fyrir tíma Angkor veldisins sem eru á lista UN yfir World Heritage Sites.
Það vildi svo skemmtilega til að daginn eftir að við komum var haldin frjósemishátíð til að uppskeran í ár yrði nú sæmileg. Hún fer þannig fram að frá morgni til kvöld er drukkið Lao Lao (sem við vorum búin að brenna okkur á) og skotið upp flugeldum. Flugeldarnir tákna reður og eiga að “frjóvga” himininn. Þetta var allt saman mjög skemmtilegt á að horfa enda tóku allir í bænum þátt í að skjóta upp tippaflugeldunum og skreyttu sig með dónamyndum. Um miðjan daginn var skrúðganga um bæinn þar sem nokkrir strákar voru í broddi fylkingar með hreyfibrúður í samfarastellingum. Við fórum síðan og skoðuðum rústirnar og um kvöldið fórum á lokahófið sem var haldið í musterisgarði þar sem fólk dansaði og söng og alls konar leikir voru í boði. Hápunkturinn þar fannst okkur vera fjáhættuspil sem nokkrir 8-10 ára strákar voru að stjórna.
Við kvöddum Kyle og Eriku daginn eftir og héldum til Don Det sem er eyja í Mekong og tilheyrir 4000 Islands. Tókum því frekar rólega, hjóluðum um eyjuna og skoðuðum fossa eða lágum í hengirúmunum okkar og horfðum á sólina setjast. Frá Don Det lá leiðin til Cambodiu og landamærin þar eru sérlega hressileg. Vel staðsett, lengst út í rassgati og landamæraverðirnir eru bastarðar. Landvistarleyfið kostar 20$ en síðan er sérstakt “stimpilgjald” sem er hvergi getið í opinberum skjölum. Þetta er yfirleitt “bara 1$” en þar sem meiri hluti Cambódíbúa lifir á undir 2$ á dag og hundruð manna fara fara um landamærin á degi hverjum. Það þýðir að landamæraverðir fá daglega það sem aðrir vinna sér inn á mánuði. Ef að næsta yfirstétt í landinu á ekki að vera landamæraverðir þá þarf einhver að segja eitthvað. Mér hefur lengi verið í nöp við tollverði og landamæraverði.
Við réttum þeim vegabréfin okkar og þeir hófust handa við skrifræðið, líma miða inn í vegabréfið, skoða myndina, velta fyrir sér hvenær sé kominn tími til að fá sér morgunblund og krota eitthvað á miða. Þegar þetta ferli er að klárast segir skriffinnur: “One dollar, one passport”
“Ég borga 20$ og ekki dollar meira” sagði ég keikur. Um leið lagðist niður öll vinna við vegabréfsáritanirnar.
“One dollar, one passport” endurtók yfirmaðurinn á staðnum.
“Ég er búinn að borga það sem ég þarf”
“This is my country!”
“Mínir peningar! Það væri réttast að ég kvartaði við sendiráðið mitt…”
Ekkert svar, enginn einu sinni horfði í áttina að okkur og ég fékk ekkert svar þegar ég bað um vegabréfin aftur. Við sáum að við stóðum halloka í þessu samtali þar sem vegabréfin okkar voru í þeirra höndum, 20km í næsta bæ og bílstjórinn okkar hvergi sjáanlegur.
Ég greip blað og penna og fór að hnipra niður númerin á búningunum þeirra og við það varð yfirmaðurinn vitlaus, bablaði heil ósköp á ensku og þreif miðann af mér. Við ákváðum að sættast á 1$ fyrir okkur bæði. Ég var sáttur. Númerið hans er 34885 ef einhver þarf að fara þarna í gegn bráðlega.
Fyrsti bærinn sem við stoppuðum í Cambodiumegin heitir Ban Lung. Við leigðum motobike og eyddum heilum degi í að skoða fossa sem eru í nágrenninu og enduðum síðan daginn á að synda í vatni sem hefur myndast í eldfjallagíg. Við eyddum 2 dögum þar og kynntumst Hollensku pari sem við höfum verið að ferðast með síðan.
Við erum komin til Siem Reap núna en næsta færsla verður um Phnom Pehn þar sem við fórum í millitíðinni.
- Þessi er með heimasmíðaða myndavél sem flassar “dildó” út um linsuna
- Spilavítið í Champasak
- Spilavítiseigandinn
- Ég myndi ekki þekkja mig út á götu…
- Verið að leggja síðustu hönd á tippaflugeld. Takið eftir að hann er með sígarettu í kjaftinum…
- Flugeldarnir fóru ekki allir mjög hátt
- Allir voru að skjóta upp flugeldum
- Buddha, við fornminjar í Champasak
- Foss nálægt Ban Lung, Cambodiu
- Fíll á röltinu í Ban Lung
- Foss nálægt Ban Lung, Cambodiu
- Þetta vatn er í eldfjallagíg nálægt Ban Lung í Cambodiu
- Dónadúkkurnar í Champasak
- Í eldfjallavatninu
- Í eldfjallavatninu
- Nýkomin úr sundi, Ban Lung
- Skvísan mín

















Posted in 






content rss

June 20th, 2008 at 10:39 am
Það er frábært að Íslenska réttlætiskenndin er ennþá til staðar. Áfram Íslenskt nöldur og barrátta gegn okri sem oftar en ekki endar með málamiðlun þess efnis að við borgum bara. En gott hjá þér Baldi ég sé þetta alveg fyrir mér þar sem þú stendur vígalegur fyrir framan tollvörðin og hrópar VÉR MÓTMÆLUM ALLIR. Þetta er svona bíomyndar móment sérstaklega vígalegt þar sem þú ert með svona Bruce Willis hár þessa dagana.
June 20th, 2008 at 11:31 am
Stolt af þér strákur!!! Ef maður vill beyta einhverju . . . he he he . . . fegin að þeir tóku þig ekki
Held að ég mundi heldur ekki þekkja þig svona sköllhærðann á götu
Love
June 20th, 2008 at 12:46 pm
Baldi minn borgaðu nú bara þessi gjöld þú gætir verið hirtur ef þú ert eitthvað að rífast:) gangi ykkur vel.
June 20th, 2008 at 1:45 pm
Ég fékk smá stresshnút í magann þegar ég byrjaði að lesa um rifridið við landamæravörðinn. Herra 34885 er örugglega með minnimáttarkennd og lítið typpi og hefur aldrei upplifað frjósemishátíð á sinni ævi!!!
Gott hjá þér að reyna að standa á þínu (typpi) en farðu nú varlega, maður veit aldrei hvað fólki dettur í hug.
June 21st, 2008 at 4:55 pm
Frábært að fylgjast með ykkur. Vona að þið haldið áfram að skemmta ykkur vel.
By the way, ég reif stundum kjaft í Thailandi og Malasíu, en ég er ekki viss um að ég hefði nokkurntímann þorað að vera með uppsteit við tollara og landamæraverði. Go Balli!
Kveðja,
Helga.
June 21st, 2008 at 10:59 pm
Hilsen. Takk fyrir kvedjur.
Mig langar a motorhjol.
kvedja og baebb.
June 22nd, 2008 at 8:25 pm
Þetta landamærabrölt hefði getað farið illa, þú segjandi “only 20$” og hinn gaurinn á móti, “since you’re acting like this it’s going to be your left arm and 2$” . Gaman að lesa ferðasöguna ykkar, ekki frá því nema að manni langi að hoppa upp í næstu vél og flakka um heiminn !!!
June 23rd, 2008 at 5:46 pm
Hress færsla, hefðir átt að bjóða verðinum í sjómann bara (”,)
June 24th, 2008 at 1:00 pm
Láttu þá bara heyra það! Þeir fengu heldur ekki að kalla mig “gringa” i Suður-Ameríku (nema Braselíu), ég er íslendingur! Ég var líka kölluð Barbie!
Það var nú bara fyndið
Gaman að lesa bloggin hjá ykkur og fylgjast með!
Hafið það kick ass gaman!
Sjáumst
June 25th, 2008 at 3:35 pm
. . . og hvar ertu nú???
Varði í dag