Milljonamaeringur
June 6, 2008
Vang Vieng er snilldarstaður. Vid leigðum okkur túbur ur traktorsdekkjum og flutum niður ánna. Á bökkunum meðfram anni eru barir sem bjóða okeypis Lao Lao sem er banvænt i miklu magni. Aðalfjörið er þó ad fara i rólurnar og sveifla ser yfir vatnið og stökkva útí. Vid fórum med Kyle og Erica i fyrradag og um kvöldid var veðmálið okkar Birnu útkljáð. Vid fundum rakarastofu sem var í raun og veru ekkert annað en rakarastóll i bambuskofa. Já, ég vann veðmálið en af því ad eigandi “rakarastofunnar” vaknaði og kveikti öll ljósin þorðum við ekki annað en að flýja. Rakstrinum var ekki alveg lokið svo ég var með hanakamb í einn dag.
- Birna í tubing
- Baldvin í góðri sveiflu
- Skál! Sjáið þið hvað maður hefur fallegt hár?
- Kyle og Erica skála í tubing
- Á leiðinni á næsta bar
- Kyle er fagmaður, enda var hann pönkari og kann að raka móhíkana
- Birna byrjaði raksturinn
- Rakarastofan í Vang Vieng
- Milli
- Vid hittum íslendinga í tubing, Óla og Steffí
- Í Vientien
- Kamburinn fékk að fjúka












Posted in 






content rss

June 6th, 2008 at 12:01 pm
Brilliant, þú ert hér með eini vinnur minn sem hefur unnið milljón í veðmáli, vá!
Myndin af þér þar sem þú ert að raka restina af er alveg gull, þú ert ekkert smá evil þarna í speglinum.. hehe. Mig grunar að ferðalagið verði aðeins þægilegra hjá þér án þess að vera með hjálm af hári á hausnum en passaðu þig bara að brenna ekki
June 6th, 2008 at 1:59 pm
Nú er að passa skallann
Góða sólvörn;)
Takk fyrir spjallið áðan.Vonandi gengur ferðin vel og það verður gaman að frétta af ykkur í þúsund eyja paradísinni.
Love,
mamma og pabbi
June 7th, 2008 at 11:04 am
Heví gaman að sjá myndir. Hefði verið til í að ríða um sand hóla á úlfalda með langt prik.. og á móti einhverjum eins og svona hesta riddara dót.
June 7th, 2008 at 5:19 pm
Glæsó splæsó! “Ánægmeððig”
June 9th, 2008 at 8:34 am
I can´t belive jú just did that. Vá hvað ég er ánægður með þig. Þú lítur síðan bara fokking töff út.
June 10th, 2008 at 12:40 am
Gaman að fylgjast með ykkur frá klakanum. Secure.c.is og ns0.c.is biðja kærlega að heilsa þér og sakna þín! Annars las ég inn á talhólfið þitt um daginn í tilefni að Valur skeit upp á hnakka á móti HK. Annars virðist “mood-ið” fylgja stólnum þínum í Vodafone og tekur Danni pirringskast af og til… sama regla gildir enn.. segja eitthvað fallegt og svo fær hann að halda áfram. Skemmtið ykkur vel
June 10th, 2008 at 8:44 pm
Hehehhe gaman að lesa commentin hér fyrir ofan, sakna ykkar allra!!
Æðislegt að sjá hversu geggjaðslega gaman er hjá ykkur, væri alveg til í að vera þarna með ykkur!
Kossar og Knús
June 11th, 2008 at 12:28 pm
Kæri sonur,
farin að sakna þess að heyra almennilega í þér.
Til viðbótar við bréfið sem ég skrifaði þér hér um daginn get ég bætt því við að ég er ekki viss um að þú þekkir bílinn okkar þegar þú kemur, því við höfum skipt um númer.
Love
June 11th, 2008 at 11:56 pm
Einstaklega gaman að fá að ferðast með ykkur í gegnum þessa síðu! Heitar myndir, heitt fólk! Hlakka til að fá að hitta ykkur, hvenær sem það nú verður!
June 13th, 2008 at 3:38 pm
Hæ gæs
Ykkur er boðið í útskriftarveisluna okkar Þorra í Mávahlíðinni annað kvöld…er ekki hægt að taka einhverja rútu bara, eruð þið nokkuð SVO langt í burtu???
Æ hvað það væri gaman að hafa ykkur með…hafið það gott elskurnar!
June 18th, 2008 at 3:02 pm
Smá fréttir af flökkurófunum.
Baldvin hringdi áðan. Sambandið var lélegt en þó fékk ég það á hreint að þau eru enn í Cambodíu. Eru með þriggja daga passa til að skoða eh musteri. Þaðan ætla þau suður á bóginn að ströndinni og dvelja í 2 daga áður en þu fara til Bankok. Ættu að vera þar á miðvikudag. Net- og símasamband í Cambodíu er lélegt og því reiknar hann ekki með að komast á netið fyrr en á miðvikudaginn.