S21 & Killing Fields

Date June 29, 2008

Rútan frá Ban Lung til Phnom Pehn var skelfileg. Við tókum minibus sem tekur 11 farþega skv. framleiðanda. Asíubúar hafa þó lag á því að troða eins mörgum um borð og mögulegt er svo við keyptum ekki miða fyrr en við vorum búin að ganga úr skugga um að það væri “one person, one seat”. Við ollum nokkrum töfum þegar við heimtuðum að rútan færi af stað með einungis 12 farþega. Fjandinn hafi það, við borguðum 12$ hvort fyrir sætið okkar á meðan local fólkið borgar kannski 1$-1.5$. Á endanum lagði rútan af stað með 15 farþega.
Við vorum ekkert sérstaklega hress með farþegafjöldan en hugguðum okkur við að það væru amk ekki neinn búfénaður með í för. Fjarlægðir í Cambódíu er mældar í klukkustundum en ekki kílómetrum enda eru vegirnir þannig að ferðatíminn breytist eftir árstíðum. Núna er monsoon svo færi er með allra versta móti. Ferðin tók 11 tíma.

Phnom Penh er höfuðborgin í Cambódíu og stendur við bakka Tonle Sap sem rennur út í Mekong nokkur hundruð metrum sunnar. Það kom okkur virkilega á óvart hvað Phnom Pehn er falleg borg, breiðstræti með stórum eikartrjám og gömlum húsum í frönskum stíl.
Fyrst kvöldið sátum við með nýju vinum okkar frá hollandi í “lobbíinu” á gistiheimilinu okkar og vorum á leiðinni að finna okkur eitthvað að borða þegar maður kemur hlaupandi inn og spyr hvort það sé læknir á staðnum. Enginn læknir gaf sig fram en um 10 manns voru tilbúnir að fara með honum og “skoða” slysið. Þegar við lögðum svo af stað í kvöldmat sáum við að slysið hafði verið 20 metrum frá gistiheimilinu okkar. Tveir menn á mótorhjólum höfðu skollið sama og lágu meðvitundarlausir á götunni. Þegar við komum að götuhorninu mættum við sjúkrabílnum og vísuðum honum rétta leið. Við sáum að fólkið á gistiheimilinu var að ljúka við að setja mennina í læsta hliðarlega með stuðningi við höfuðið. Sjúkraflutningamennirnir tóku út börur og óku þeim að hlið annara mannsins og vippuðu honum upp á og óku honum inn í sjúkrabílinni.
Ég átti eiginlega von á að þeir myndu að minsta kosti athuga hjartslátt og öndun, kannski setja hann í kraga en slíkt tíðkast ekki í Cambódíu. Okkur brá samt öllum þegar þeir snéru sér að seinni manninum, gripu um hendur og lappir á honum og smelltu honum á gólfið við hliðina á þeim fyrri. Hugsanlega fá þeir borgað per skrokk sem þeir skila af sér.

Daginn eftir fórum við í S21 og Killing Fields. Þegar Rauðu Khmerarnir náðu völdum 1975 byrjuðu þeir á að tæma allar borgir og bæi og sendu fólk út í sveit til að rækta hrísgrjón. Samfélagið átti að vera stéttlaust og fullkomið og efnahagslegur grunnur þjóðarinnar átti að vera landbúnaður. Þeir lokuðu landinu fyrir öllum utanaðkomandi áhrifum og ætluðu að vera sjálfum sér nægir um allt. Áður en lönd geta orðið “fullkomin” þá þarf að losa sig við óæskilega einstaklinga, fólk sem er neikvætt eða leggur sig ekki nóg fram á ökrunum eða er frá CIA.
Tuol Sleng (S21) er skóli sem var breytt í fangelsi til að pína út játningar fyrir Pol Pot og hina geðsjúklingana sem stjórnuðu landinu. Þegar allir voru orðnir sannfærðir um að viðkomandi væri búinn að játa allt sem hann hafði brotið af sér var honum ekið út fyrir Phnom Pehn og tekinn af lífi á Killing Fields. Engin var of ungur eða of gamall til að vera óvinur. Karlar, konur, börn og aldraðir. 17000 manns fóru í gegnum S21 og aðeins 7 lifðu af. Síðustu fórnarlömbin voru enn á pyntingarbekkjunum þegar Víetnamar hertóku borgina 1979. S21 er bara eitt af mörgum slíkum fangelsum sem voru staðsett um allt landið.

Það er eiginlega ekki hægt að lýsa því hvernig það er að ganga þarna um svo hér eru nokkrar myndir.

6 Responses to “S21 & Killing Fields”

  1. mamma said:

    Verst að þessi illska er enn að gerast í þessum heimi.
    Hvað verið þið lengi í Phnom Penh

  2. Mamma Birnu said:

    Þetta er sorgleg saga sem þú segir okkur. Því miður var Hitler ekki eini geðveiki þjóðarleiðtoginn í heiminum, það eru margir svokallaðir “leiðtogar” sem ætti að hýsa í rammlega lokuðum geðveikrahælum.
    Peter og Vibeke senda ykkur þúsund kossa og hlakka mikið til að sjá ykkur í Köben.

  3. Helga Dögg said:

    Spúkí myndir, gaman að fá fréttir af ykkur. Skemmtið ykkur sem allra best restina af ferðinni :-)

  4. Kría said:

    Vó svakalegt!!!

  5. Bella said:

    Gaman að heyra frá ykkur! Skemmtið ykkur vel og komið heil heim (til Danm.).

  6. Ingó said:

    Var að átta mig á því að ég á heima í killing fields ( Drápuhlíð )

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>