Síðustu dagarnir í Thailandi
July 15, 2008
Við erum við það að komast á Perhentian eyjarnar í Malasíu. Eina sem stendur í vegi fyrir okkur er bátsdallur sem er hættur að ganga í dag og við erum strand í bæ sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir. Við erum búin að vera í 2 daga á ferðinni svo við ákváðum að splæsa í aircon og sjónvarp á hóteli í nótt. Lúxusinn kostar heilar 1100kr en við eigum það skilið.
Koh Tao var brilliant. Við fylgdum ráðleggingum frá kanadísku vinum okkar sem höfðu verið þarna á ferðinni nokkrum dögum áður og keyptum köfunarnámskeið hjá LV Divers. Leiðbeinendurnir voru frábært fólk og virkilega gaman að fara í gegnum þetta prógramm með þeim. Köfunarnámskeiðið tók bara þrjá daga en við ákváðum að vera nokkra daga í viðbót og njóta eyjunnar og fá réttindi til að kafa enn dýpra. Það er ótrúleg tilfinning að svamla á milli kóralla og þúsunda fiska í neonlitum. Í djúpköfuninni okkar voru hákarlar syndandi allt í kring sem var býsna svalt.
Við eyddum síðan nokkrum dögum á Koh Phangan sem er eyja sunnan við Koh Tao. Það er svona Majorka fyrir Asíubúa, það er ekkert þarna nema strönd og á kvöldin eru skemmtistaðir á ströndinni. Afskaplega einfalt.
Hápunkturinn hjá þeim er síðan Full moon partý þar sem eyjan breytist í Sódómu og miðbæ Reykjavíkur á sama tíma. Það verður allt vitlaust í partí og stóðlífi og allt kostar 3x meira en venjulega.
Við létum okkur nægja að kíkja á Half moon teiti og pilluðum okkur svo af eyjunni og erum núna strand í bænum sem við vitum ekki hvað heitir. Edit: Ef einhver giskaði á að við værum í bænum Kota Bharu þá á hann inni hjá mér kaffisopa. Gildir í DK only…
Myndirnar hér fyrir neðan eru í þetta skiptið ekki teknar af mér heldur Damien Llambi og birtar með góðfúslegu.
- Það þarf að græja þetta allt rétt
- Skugga-Baldvin
- Baldvin
- Birna
- Í kafi
- Kórallar
- Trigger-fish
- Ég held að þetta sé frændi Nemó
- Nemó!









Posted in 






content rss

July 15th, 2008 at 12:18 pm
Hefuru séð Open Water?
July 15th, 2008 at 1:34 pm
Úllalla en gaman hjá ykkur. Takk fyrir spjallið áðan:)
July 15th, 2008 at 9:49 pm
Hæ hó vá hvað þetta hljómar mjög skemmtilegt! ótrúlega gaman að fylgjast með ykkur!
kossar frá barcelona
July 16th, 2008 at 6:27 am
Köfunin hljómar vel

Malasía er án efa góður staður að koma til. Ætla samt að geyma það. Er að fara til Ísl. í dag.
17 dagar í að ég sjái ykkur. Muna að 2 ágúst er frátekin fyrir okkur
Væri gott að heyra í þér.
Love
July 16th, 2008 at 6:55 pm
Þú verður nú að photoshopa hákarl á bakvið ykkur
July 17th, 2008 at 10:10 am
Finnst dáldið dýr kaffibollinn ef ég þarf að fara til Köben til að fá hann…
Gott að heyra að þið skemmtið ykkur vel og allt gengur vel. Er viss um að það verður ekkert mál að komast í Jungle Train.
Góða ferð,
Helga
July 17th, 2008 at 7:15 pm
Vá geggjað!
En heyrðu hvenar verðiði í köben??
July 17th, 2008 at 8:09 pm
Hæ Baldi og Birna,
Þessi síða hefur allveg farið framhjá mér ( þýðir ekkert að segja mér svona hluti þegar ég er í glasi!) Mamma þín kom til okkar í Rauðásin áðan og sagði mér frá síðunni, frábært að ykkur líður vel þarna úti, maður saknar ykkar nú smá þannig ég verð bara að kíkja á ykkur í dk!
Hafið það sem allra best!
kv
Maggi Freyr
July 22nd, 2008 at 9:46 am
Bíð spennt frétta af verðlagi í Khatmandu(?)
Veðrið hér: Blautt.
Dvel því í lauginni. Best að hafa þetta alvöru.
Kemst ekki á Esjuna, er ekkert fyrir að tínast í þoku. . .
Annnars góð
Vona að þið hafið það gott.
Love
July 22nd, 2008 at 8:02 pm
Góða kvöldið héðan frá Reykjavík. Eigum við ekki bara að breyta spurningamerkinu í Kulalumpur í Malasíu??? Smá truflanir í gangi hér ;o/
July 24th, 2008 at 12:50 pm
Takk æðilsega fyrir póstkortið sem að kom í fyrradag
Póstmaðurinn í mér vonar að þið hafið haft vit á að senda fínu fínu klæskerasniðnu fötin ykkar skráð, annars eru ekki góðar líkur á að þau komi heim… :s Meðfylgjandi er barnalandssíða sem að enn inniheldur engar aðrar myndir en sónar myndir… Það kom engin bumba!!
Vona að það sé ótrúlega gaman.
Knús Eva og Róbertsdóttir