Slakað á ströndinni
July 4, 2008
Sihanoukville er á suðurströnd Cambódíu svo það var löng ferðin frá Siem Reap. Sem betur fer eru vegirnir á þessum leiðum þokkalegir end er þetta eina hafnarborgin í landinu. Við gerðum heiðarlegar tilraunir til að vera ferðamenn en ekki túristar með því að fara og leita uppi höfnina og markaðinn en staðreyndin er sú að það er ekkert í Sihanoukville nema ströndin. Svo við fórum á ströndina.
Þar sem hollensku vinir okkar voru á leiðinni til Víetnam ákváðum við að vera þeim samferða til Kep sem er 30km frá landamærunum. Kep er drullupyttur og peningaplokk. Það er enginn bær heldur röð af gistihúsum og hótelum. Nóttin kostaði 35$ alls staðar sem er klárlega okur. Það versta var samt að þó svo að við værum einu ferðamennirnir í bænum þá var enginn tilbúinn að gefa afslátt og fullyrtu að það væri ekki til neitt sem heitir low season. Það var kominn smá hiti í mig svo við ákváðum að finna leið til að komast úr bænum aftur. Við tókum samt gistingu á stað sem var þokkalegur en kostaði heila 10$.
“How much for a tuk tuk to Kampot?” spurði ég í móttökunni.
“About 12-14$.” var svarið. Þetta hljómar kannski ekki mikið en þegar þú veist að daglaunin hjá meirihluta þjóðarinnar er 2$ og fjarlægðin sem við þurfum að fara er ekki nema 20km…
“No, I want cheap…”
“Nothing cheap.”
“No of course not.” Ég labbaði inn á herbergi.
Við kvöddum Joost og Tamöru um morguninn og fórum til Kampot. Þar rétt hjá eru nokkrir hellar svo við leigðum okur motobike og keyrðum ym sveitina til að finna þá. Kampot var mun skemmtilegri staður en Kep svo við vorum þar auka dag áður en við fórum til Bangkok. Við vorum í Bangkok í nokkra daga, aðallega að bíða eftir klæðskerasniðnu jakkafötunum mínum og dragtinni hennar Birnu. Þegar það var komið í póst héldum við til Koh Tao þar sem við erum núna.
- Tamara og Jost
- Hellaskoðun
- Kampot
- Kampot
- Á Koh Tao
- Koh Tao
- Baldi og Birna







Posted in 






content rss

July 7th, 2008 at 9:13 am
OMG!! Eruð þið á Sairee beach? Vá hvað ég get ekki beðið eftir að lesa um köfunina hjá ykkur og bara öll ævintýrin á Koh Tao…
Vona að þið skemmtið ykkur super vel á Koh Tao
July 7th, 2008 at 12:52 pm
Vá!! 95 dagar frá því þið lögðuð af stað stendur á blogginu hennar Birnu…hvað eru margir eftir?
Eins og sönnum Íslendingi sæmir þá segir hann frá veðrinu heima: síðastliðna daga hefur verið sól og massívur hiti (á úthjaraskala) og spáin segir að það muni halda áfram, a.m.k. fram að næstu helgi:)
July 7th, 2008 at 2:38 pm
Hæ hæ Baldi myndin frá Koh Tao er slegin þetta er FLOTT mynd,hafið það sem best.
July 8th, 2008 at 2:16 pm
Er ég eini um það að vilja mynd af Balla í þessum jakkafötum?
July 10th, 2008 at 9:58 am
Vá hvað mig langar að vera með ykkur þarna á ströndinni!!
Vildi annars bara láta ykkur vita að ég er að fylgjast með ykkur
Kossar frá köben
July 12th, 2008 at 7:55 pm
Þá erum við komin heim. Takk fyrir kveðjuna.

Áttum frábæra ferð og ég lokkaði pabba þinn með mér í eina flotta fjallgöngu, rúmir 1900m. Bara góð
Myndirnar þínar eru snilld en flottast finnst mér nú að sjá þig, enda á enginn nema ég svona flottan strák! Ja….. nema ef vera skildi hann pabbi þinn
Love
Ps.
pabbi þinn er úti að þvo MB, ég legg ekki meira á þig
July 13th, 2008 at 2:15 pm
Takk fyrir spjallið gamli
Vonandi njótið þið dvalarinnar á Perhentian eyjum. Ég er ekkert öfundsjúkur neeeii http://www.umdiewelt.de/photos/96/124/5/1621.jpg