Stórafmæli!
July 25, 2008
Elsku mamma, til hamingju með daginn. Ég vona að þú hafir átt góðan dag og að það verði mikið dansað í teitinni. Fimmtíu ár fara þér vel. Ég a.m.k. vona að ég hafi erft krumpugenin þín.
Kossar frá Malasíu
Baldi og Birna
Posted in 






content rss

July 26th, 2008 at 12:28 am
Takk fyrir góðar óskiir
Takk fyrir samtalið í morgunn. Gott að byrja góðan dag svona.
Takk fyrir blómin sem komu frá ykkur með fallegu fólki.
Erum núna í Litla Selsundi. Hér verður mikið fjör á morgunn. Amma mætti líka í kvöld og krafðist þess að gista í tjaldi. Hún er með rauðu útileguhúfuna svo þetta er pottþétt dæmi!!!
Á morgunn verður stóra tjaldinu tjaldað og síðan verður svaka fjör allann daginn, pabbi þinn tók hljómborðið með( stoppaður í tollinum) .
Ég er búin að fá gengdarlaust flottar gjafir í dag og er nú verulega ofdekruð.
Love
July 31st, 2008 at 11:07 pm
Velkomin til DK
Love
August 3rd, 2008 at 8:37 pm
Jæja, ferðalagið á enda…hvar eruð þið stödd núna elskurnar?
August 13th, 2008 at 12:57 am
Vá hvað ég dó næstum úr hlátri þegar ég sá á msn 20 pund fyrir rútumiða, culture shock… Minnti mig á þegar við Ósk tókum í fyrsta skipti taxa í Rvk eftir að við komum heim í vetur og fríkuðum út þegar hann tók ranga beygju sem kostaði okkur auka 100 kr = heil taxa ferð í Bangkok haha
August 26th, 2008 at 11:34 am
Hva…ferðalagið um ókunnar slóðir er á enda en þó þið séuð komin á kunnugri slóðir þá hafa vinir ykkar nú samt áhuga á að vita hvað er að frétta, hvernig ykkur líður og hvernig ykkur gengur þarna í útlandinu…eitt stykki blogg takk:)
August 29th, 2008 at 8:09 pm
Hvad er thetta ? A ekkert ad fara ad blogga um lifid i DK ?
September 6th, 2008 at 3:36 am
Veit að þetta kemru ekkert stórafmæli móður þinnar við til hamingju með það!…..En ég var á google vappi um daginn herra Baldvin og ákvað að slá inn nafnið mitt. Þar sem ég er eini Karl Baldvin á landinu þá er voðalega auðvelt að sjá hvort það sé eitthvað sem tengist manni.. Rekst kallinn ekki á færslu frá “Snáknum” dagsetta daginn fyrir áramót 2004….
“Ég var einu sinni að vinna með strák sem hét Karl Baldvin. Það kom sér vel fyrstu dagana þegar hvorugur okkar kunni að gera upp kassann. Þá sagði ég alltaf við Kalla, “Ég skal redda þessu”
Síðan rölti ég upp á skrifstofu og fékk mér kaffi og slæptist meðan hann þreif og fyllti á kælana. Þegar ég var svo búinn með kaffi skrifaði ég miða sem á stóð: “Gerði ekki upp kassann.”
og skrifaði undir með hreinni samvisku Karl Baldvin með minnstu kommu á milli nafnanna sem sést hefur í rituðu máli”
Jæja Herra Osmann, samkv. þessu þá er vinátta okkar byggð á lygum! voðalega kom það mér líka á óvart þegar ég var REKINN frá Esso, gæti það verið útaf vankunnáttu minni við að gera upp kassa?? eða var það eitthvað allt annað? Allavega þá þarft þú að koma þér á msn og útskýra þitt mál Baldvin…ef það er þitt rétta nafn ! Internetið svíkur Baldvin Internetið svíkur….
October 29th, 2008 at 8:54 am
Kæri sonur,
ha ha ha
hjartanlega til hamingju með afmælisdaginn og takk fyrir síðast
Farðu nú að blogga smá um lífið í Köben, get ekki verið að heimsækja þig svona endalaust
Love,
ótuktin hún mamma þín
October 29th, 2008 at 1:49 pm
Hæ hæ frændi og til hamingju með daginn já farðu nú að blogga