Til sölu

Date March 27, 2008

Bíllinn var fluttur inn af umboðinu og kom á götuna í ágúst ‘95. Ég er 6. eigandi að bílnum. Hann er alveg yfirfarinn og skoðaður fyrir ‘09. Hafið samband í síma 6699549 fyrir frekari upplýsingar eða skiljið eftir komment.

  • Vél: M40B16 – 1,6l
  • 102 hestöfl
  • AlpinWeiß III (Hvítur)
  • Svart áklæði að innan
  • Ekinn 171 þúsund
  • Smurbók frá upphafi
  • Sjálfskiptur
  • Miðstöð með AC
  • Pioneer geislaspilari
  • Magnari + box
  • Rafmagn í rúðum og speglum
  • 15″ orginal BMW áfelgur á vetrardekkjum
  • Hluti af pústi endurnýjaður
  • Nýjir demparar að aftan
  • Nýjir bremsuklossar að framan
  • Ný bremsurör
  • Nýr spindill
  • Skoðaður ‘09
  • [gallery]

    Útlitsbreyting og fleira.

    Date March 19, 2008

    Tók síðuna aðeins í gegn og breytti útlitinu. Ég er mjög sáttur með þetta útlit í bili amk. Því miður virðist síðan ekki vera neitt hraðari að birtast. Ætla að skoða það aðeins áfram. Annars er lítið að frétta af okkur enn þá. Það má búast við því að sniðið á þessari síðu breytist aðeins þegar við förum að blogga um ferðalagið okkar. Ætlum að halda úti smá ferðabloggi og reyna að setja inn myndir þegar við getum. Brottför er 3. apríl.

    Við erum búin í öllum bólusetningum og komin með vegbréfsáritun til Indlands þar sem við ætlum að byrja ferðalagið. Tilhlökkunin er orðin talsverð en það er enn þá nóg að undirbúa. Til dæmis hef ég til sölu 95 árgerð af BMW 316iA Coupe sem fer á sanngjörnu verði.

    Það hefur verið grátlegt að horfa upp á gengið hrynja á síðustu dögum. Gjaldeyririnn okkar er um 30% minna virði núna en um áramótin og það á örugglega eftir að hafa einhver áhrif á ferðina. Það er náttúrlega lítið hægt að gera í því núna annað en að vona það besta og laga sig að þeim breytingum sem verða. Við hlökkum annars svo mikið til að við erum ekki að svekkja okkur of mikið á þessu.