Í dag er alþjóðlegi “Buy-nothing-day”. Dagur þar sem fólk er hvatt til þess að versla ekkert og hugleiða hvað okkar neysla hefur mikil áhrif á náttúruna og samfélagið. Á síðu tileinkaðri deginum segir meðal annars:
Everything we buy has an impact on our planet. Buy Nothing Day highlights the environmental and ethical consequences of consumerism. The developed countries – only 20% of the world population are consuming over 80% of the earth’s natural resources, causing a disproportionate level of environmental damage and unfair distribution of wealth.
Þáttaka er einföld og kostar ekki neitt. Þetta ætti því ekki að vera erfitt fyrir þá sem búa á Íslandi. Þú átt hvort eð er engan pening eftir þegar þú er búinn að láta féfletta þig í matvöruverslununum, í bönkunum, við olíudæluna, hjá tryggingarfélaginu, borgar af fasteigninni með 6.4% vöxtum eða húsaleigu upp á 1500kr fyrir fermeter. Það kostar 900kr í bíó og eitt ósmurt rúnnstykki í bakaríinu kostar 160kr.
Þetta gerir þú í hagkerfi með 6% verðbólgu og fer hækkandi. Hvílum okkur aðeins á neysluhyggjunni áður en við dettum í jólaverslunina.
November 24, 2007
Posted in







content rss
