Joe Kittinger

Date November 15, 2007

Joe Kittinger stekkur úr 30km hæðHversu kaldur þarftu að vera til þessa að samþykkja að setjast um borð í loftbelg sem síðan er sendur í rúmlega 30km hæð og hoppa síðan niður… Joe Kittinger gerði nákvæmlega þetta 16. ágúst 1960. Hann náði 998km hraða sem í svona þunnu lofti og miklum kulda er meira en hljóðhraði. Sumir segja að hann hafi verið fyrsti geimfarinn þó nú sé almennt miðað við að “outer space” byrji í 100km hæð.

Tæpu ári áður hafði hann stokkið úr 23 km hæð og var rétt dauður þegar hann lenti í óstjórnlegum snúningi, um 120 rpm. Aflið sem verkaði á hann samsvaraði 22 G sem er met sem stendur enn þá. Hann missti meðvitund og sjálfvirk fallhlíf bjargaði lífi hans.

Seinna á ævinni fór hann í þrjá túra til Víetnam og í þeim síðasta var vélin hans skotin niður. Hann var stríðsfangi í 11 mánuði. Merkilegur maður. Mæli með því að þið kíkið á þetta vídeo.