Tilkynningaskyldan

Date June 26, 2008

Áætlanir breytast á svona ferðalögum. Við erum enn í Cambodiu, Kampot nánar tiltekið og förum til Bangkok á morgun. Þegar komum þangað getum við vonandi sett inn myndir og sagt frá Phnom Pehn og Angkor Wat. Setti inn smá kort sem sýnir hvar við höfum verið að hrekkja innfædda síðustu vikur. Sennilega er betra að skoða stóru útgáfuna með því að smella á myndina hér fyrir neðan.

Kveðjur frá Kampot!

p.s.
Var að heyra eitthvað um verðbólgu upp á tæp 13% heima. Þetta er grábölvað og snertir okkur öll en það er huggun harmi gegn að bjórinn hér kostar um 40kr á barnum. Þið eigið skilið að fá Thule fyrir að þrauka þetta.

2 Responses to “Tilkynningaskyldan”

  1. mamma said:

    Hlakka til að fá að heyra í þér. Förum og sækum BBB á morgunn, skólinn búin. Svo fer hún til Íslands á sunnudagskvöldið svo við sjáum hana ekki mikið…
    Er að fara á skólaslit á eftir hjá mér, nenni ekki er bara komin í frí ;

    Love

  2. Fjóla frænka said:

    Thule hvað ertu ekki danskur drengur :) hafið það gott(bara grín skal)

Leave a Reply

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>